Markakóngur og vill vera áfram í Eyjum
Oliver: Ég ætlaði mér að verða markahæstur og hefði getað skorað aðeins fleiri, en fjórtán dugðu. Mynd Sigfús Gunnar.

„Þrátt fyrir að við unnum ekki leikinn þá er þetta bara geðveik tilfinning,” segir Oliver Heiðarsson, leikmaður ÍBV eftir 1:1 jaftnefli gegn Leikni í lokaumferð Lengjudeildarinnar við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Oliver endaði sem markakóngur Lengjudeildarinnar með 14 mörk.

„Bara mjög sáttur. Ég ætlaði mér að verða markahæstur og hefði getað skorað aðeins fleiri, en fjórtán dugðu í þetta skipti. MIklu meiri stöðugleiki  hjá mér þetta ár heldur en í fyrra. Það eru leikir sem ég er ósáttur með, en það eiga allir slæma leiki,”

Oliver var spurður út í hvort hann verði áfram hjá ÍBV í næsta ári.

„Eins og er þá er ég í Eyjum, ég er náttúrulega samningsbundinn. Ég ætla mér ekkert að hugsa  um þetta núna. Ég ætla bara að taka smá frí en  þetta er búið að vera svolítið langt tímabil. Mig langar að vera í Eyjum og mér finnst ógeðslega gaman að vera vera þar.”

Nánar á fótbolti.net.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.