Marseraðu með okkur og nældu þér í sokkapar!

Við marserum af stað í Mottumars í dag, föstudaginn 1. mars. Þá hefst sala á nýjum Mottumars-sokkum í verslunum um land allt og í vefverslun Krabbameinsfélagsins. Síðdegis opnar nýtt vefsvæði fyrir karla, karlaklefinn.is og ljósmyndasýningin Meiri menn opnar á sex stöðum á landinu.

Mottumars-sokkarnir
Mottumarssokkarnir eru hannaðir af Önnu Pálínu Baldursdóttur, nemanda í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands, sem bar sigur úr bítum í hönnnunarsamkeppni Krabbameinsfélagsins og Listaháskólans síðastliðið haust.

Í Karlaklefanum er að finna fræðsluefni af ýmsum toga sem sérstaklega er ætlað karlmönnum.Karlmenn leita sér upplýsinga í minna mæli en konur varðandi margt sem snertir heilsufar, þeir bregðast síður við einkennum og leita seinna til læknis. Markmið Krabbameinsfélagsins með Karlaklefanum er að auka áhuga karla á fróðleik og upplýsingum um heilbrigðan lífsstíl. Einnig um krabbamein og sjúkdómsferli, réttindamál, stuðning og viðbrögð aðstandenda og vinnufélaga svo dæmi séu tekin. Fyrsti áfangi vefsins opnar síðdegis í dag í tilefni af upphafi Mottumars.

Reynsluheimur karla með krabbamein
Ljósmyndasýningin Meiri menn byggir á persónulegum sögum átta karlmanna víðs vegar af landinu sem greinst hafa með ólíkar tegundir krabbameina. Sýningin fer fram í Karlaklefanumog á sex sýningarstöðum; í Kringlunni, Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, á Glerártorgi Akureyri, í JMJ herradeild á Akureyri, í Ráðhúsi Reykjanesbæjar og í Neistanum á Ísafirði. Það eru ljósmyndararnir Ásta Kristjánsdóttir og Auðunn Níelsson sem eiga heiður að myndunum.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.