Með ólíkindum
�?að er með ólíkindum að eitt stærsta skemmtifyrirtæki í heimi skuli koma til Vestmannaeyja og fjárfesta fyrir hundruði milljóna líkt og er að gerast á Fiskiðjureitnum. Merlin Entertainment ætlar að byggja stóra sundlaug undir hvali, koma á fót nýju náttúrugripasafni og skapa þannig ný störf og spennandi tækifæri í ferðaþjónustu.
Fiskiðjan blómstrar
Á sama stað má finna nýtt háskólanám í Haftengdri nýsköpun sem var sett á laggirnar nýlega og glæsilega aðstöðu sem �?ekkingarsetur Vestmannaeyja leigir út til fjölmargra fyrirtækja og stofnana. Á þriðju hæð Fiskiðjunnar verða bæjarskrifstofurnar með alla sína starfsemi og þjónustu á sama stað, með meira hagræði og minni rekstrarkostnaði en áður.
Á efstu hæðinni eru síðan einkaaðilar að byggja íbúðir sem verða til sölu á almennum markaði. �?ess vegna er blásið lífi í húsið með minni kostnaði fyrir Vestmanneyjabæ og um leið fáum við betri ásýnd og meira líf á þessu fallega svæði.
Stendur undir kostnaði
Eldheimar hafa hlotið fjölmörg verðlaun enda safnið stórglæsilegt og enn ein viðbótin í menningarflóruna í Eyjum. Safnið stendur undir rekstrinum og rúmlega það. Kvika menningarhús er allt orðið hið glæsilegasta og hýsir nýja og glæsilega aðstöðu eldri borgara í Eyjum. �?ar hefur Eyjabíó opnað og Leikfélag Vestmannaeyja blómstrar þar í endurbættum sýningarsal.
Látum verkin tala
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á Hraunbúðum, nýlega opnaði þar deild fyrir fólk sem þarf sérhæfða þjónustu og er því hægt að veita mun sérhæfðari þjónustu en áður. Nú þegar hefur verið hafist handa við að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða og von er á nýjum þjónustuíbúðum fyrir fatlaða á Ísfélagsreitnum í miðbænum. �?að má með sanni segja að það séu spennandi tímar framundan á Eyjunni fögru. �?að er alltaf best að láta verkin tala.
Trausti Hjaltason
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.