Meira en þrefalt meiri loðnukvóti en fyrra
Hafrannsóknastofnun leggur nú til að loðnukvótinn á yfirstandandi vertíð verði 580.000 tonn. �?að er 320.000 tonn aukning frá fyrstu tillögu og meira en þreföldun frá kvóta síðasta árs. Á síðustu 10 árum hefur kvótinn aðeins einu sinni verið meiri. �?að var á vertíðinni 2011/2012, þegar hann var 765.000 tonn og vertíðina 2004/2005 var kvótinn 765.000 tonn. �?essi aukning þýðir margföldun afla- og útflutningsverðmæta frá síðustu vertíð.
Hafrannsóknastofnun áætlar að veiðistofninn nú sé 969.000 tonn. �??Áður en mælingum lauk var búið að veiða um 65 þúsund tonn á vertíðinni 2014/2015, þar af ríflega 40 þúsund tonn sumarið 2014. Í ljósi gildandi aflareglu um að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar og á grundvelli ofangreindra mælinga í janúar 2015, leggur Hafrannsóknastofnun til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2014/2015 verði ákveðinn 580 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram. Er það 320 þúsund tonna viðbót við útgefið aflamark í október 2014,�?? segir í frétt frá stofnuninni.
Hafrannsóknastofnun var við loðnumælingar frá 5. janúar síðastliðnum og lauk leiðangrinum í dag er rannsóknaskipið Árni Friðriksson kom til heimahafnar. Auk Árna Friðrikssonar tók Birtingur NK þátt í rannsóknunum dagana 16.-22. janúar.
�??Mælingar hófust út af Vestfjörðum og náðu þaðan allt austur fyrir land. Í upphafi leiðangursins var veður mjög gott og aðstæður til mælinga góðar, en þá gerði óveður og varð rannsóknaskipið að leita vars í 5 daga. �?ví varð að endurtaka mælingar á því svæði sem búið var að rannsaka og byggja niðurstöður mælinga sem gerðar voru á Árna Friðrikssyni dagana 17.-29. janúar. Loðna fannst á öllu mælingasvæðinu en, var víða mjög dreifð. Mest mældist þó út af Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi að Kolbeinseyjarhrygg,�?? segir þar ennfremur.
Dreifing loðnunnar ásamt leiðarlínum Árna Friðrikssonar er sýnd á kortinu en á myndinni er Ingunn Ak að loðnuveiðum.
kvotinn.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.