„Meiriháttar í alla staði"
19. september, 2024
Hopmynd Porto Vsv 20240913 121231
Hópurinn fyrir framan höfuðstöðvar Grupeixe. Ljósmyndir/vsv.is

Um síðustu helgi fóru Akóges-félagar og frúr í skemmtiferð til Porto í Portúgal. Heimsótti hópurinn m.a. dótturfélag Vinnslustöðvarinnar, ​Grupeixe. Fyrirtækið sérhæfir sig í saltfiskvinnslu.

Hópurinn taldi 16 félaga og 15 maka. Kristmann Karlsson var einn þeirra sem fór ferðina. Hann segir í samtali við Vinnslustöðvar​-vefinn að móttökurnar sem hópurinn fékk hafi verið alveg hreint stórkostlegar.

Ánægðir með samstarfið

„Meiriháttar í alla staði. Móttökurnar í saltfisk​-fyrirtækinu voru stórkostlegar.” segir hann. Spurður um hvað stóð upp úr í ferðinni svarar Kristmann að bragði:

„Það var að skoða fyrirtækið, hvað þetta er stórt og vel gert. Hvað þeir eru ánægðir með samstarfið við Vinnslustöðina. Svo var okkur boðið í hádegisverð. Þar var töfruð fram fimm rétta veisla með öllu tilheyrandi. Fimm rétta saltfiskveisla.”

Er Kristmann er spurður hvort eitthvað hafi komið á óvart í ferðinni segir hann svo ekki vera.

Það kom ekkert á óvart. Þetta stóð undir öllum væntingum. Vel skipulagt af hálfu Vinnslustöðvar​innar.

Undanfarna daga hafa geisað skógareldar í Portúgal. Okkur lék forvitni á að vita hvort Eyjahópurinn hafi orðið var við þá. Kristmann segir að svo hafi ekki verið.

„Það var ekki fyrr en við komum heim og sáum það í sjónvarpinu. Hitinn var kominn í 32°. þegar að við fórum heim. Við fórum í loftið að kvöldi en sáum enga elda.”

Er talið berst aftur að saltfisknum og hvort hann hafi verið hrifinn af honum segir hann ákveðið.

„Mjög svo. Ég gæti borðað fisk í öll mál og þar er saltfiskurinn framarlega á blaði. Einnig var gaman að smakka nýjar útfærslur. Þeir nota einhver sérstök krydd á fiskinn sem leika við bragðlaukana.”

Spurður um hvað hópurinn hafi gert fleira í ferðinni segir Kristmann að flestir úr hópnum  hafi farið í siglingu á fljótinu.

Akoges Heimsokn Porto Vsv

Ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið úr saltfisk

Sigurður Georgsson, Akóges​-félagi er einnig mikill matgæðingur. Hann var hæstánægður með ferðina. „Alveg geggjuð ferð.” segir hann. Spurður hvað hafi staðið upp úr segir hann segir að ferðin um fyrirtækið hafi staðið uppúr.

„Hvernig þetta fór fram þarna hjá þeim. Það var líka sérstakt að sjá að það var kvenfólk í nánast öllum störfum þarna. Þær voru lyfturum, setja í þurrkklefann og gegnu í raun í öll störf. Allir virtust vera mjög ánægðir þarna.

Svo fórum við á matsölustað. Þar fengum við sjö mismunandi saltfiskrétti. Það er í raun alveg ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið úr saltfisk. Nuno sagði við okkur að það væri ekki saltfiskur nema að þú fáir eitt og eitt bein.” segir Sigurður og hlær.

Leggjum mikla áherslu á ​uppruna vörun​nar og tengingu okkar til Vestmannaeyja

​Nuno sem Sigurður vísar til er Nuno Araújo, framkvæmdastjóri Grupeixe. Hann segir að það hafi verið afar ánægjulegt að fá þennan góða hóp frá Vestmannaeyjum í heimsókn.

„Grupeixe er ekki bara portúgalskt fyrirtæki heldur einnig íslenskt og ekki síst Vestmannaeyskt. Við leggjum mikla áherslu á uppruna vöru​nnar og tengingu okkar til Vestmannaeyja. Þessi heimsókn styrkir þá tengingu svo sannarlega. Við hjá Grupeixe þökkum þessum góðu gestum fyrir komuna og sendum bestu kveðjur til Vestmannaeyja.” segir Nuno Araújo.

Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst