Mestur verðmunur á kjöti og konfekti
Mynd/Pexels

Mikill verðmunur var á jólamat milli verslana í verðkönnun ASÍ sem framkvæmd var á mánudaginn síðastliðinn. Mestur var verðmunurinn á algengum jólamat eins og kjöti, gosi, jólaöli og konfekti og er því ljóst að neytendur geta sparað sér töluverðar fjárhæðir þegar keypt er í jólamatinn. Allt að 1.400 kr. verðmunur var á kílóverðinu af hangilæri sem gerir 4.200 kr. verðmun ef 3kg hangilæri er keypt og 890 kr. verðmunur var á kílói af Nóa konfekti.

4.200 kr. verðmunur á hangilæri
Mestur verðmunur var á léttreyktum lambahrygg frá Kea eða 73% verðmunur á kílóinu. Lægsta verðið var í Bónus, 1.679 kr en það hæsta í Hagkaup, 2.899 kr sem gerir 1.220 króna verðmun. Þá var 54% verðmunur á kílói af úrbeinuðu Fjalla hangilæri eða 1.400 kr. verðmunur. Lægsta verðið var í Bónus, 2.598 kr. en það hæsta í Iceland 3.998 krónur. Ef við gefum okkur að keypt sé 3 kg hangilæri gerir það 4.200 króna verðmun.

Mikill verðmunur var á gosi eða upp í 134% verðmunur á hálfs líters dós af Hátíðarblöndu frá Vífilfelli. Lægsta verðið mátti finna í Bónus, 85 kr. en það hæsta, 199 kr. í Iceland en það gerir 114 kr. eða 134% verðmun. Þá var 58% verðmunur á 2l flösku af Pepsi Max, hæst var verðið í Hagkaup 339 kr. en lægst, 215 kr. í Bónus.

Verðmunur á konfekti var einnig mikill. Mestur var hann 135% eða 420 kr. á 300 gr. After eight kassa. Lægsta verðið, 319 kr. mátti finna í Fjarðarkaup en það hæsta, 749 kr. í Iceland. Mestur verðmunur í krónum talið var á kílói af Nóa konfekti, lægsta verðið, 2.999 mátti finna í Krónunni en það hæsta, 3.899 í Hagkaup sem gerir 30% eða 890 kr. verðmun.

Hægt að spara sér háar upphæðir
Verðmunur á jólamat getur fljótt orðið mikill enda í mörgum tilfellum um að ræða nokkuð dýrar vörur sem mikið er keypt af yfir hátíðarnar. Mörg þúsund króna verðmunur getur verið á sömu jólasteikinni milli verslana og þá eru upphæðirnar fljótar að telja þegar mikið er keypt af gosi auk þess sem mikill verðmunur getur verið á konfekti sem er tiltölulega dýr vara. Hér eru dæmi um tvær vörukörfur, önnur keypt í Bónus og Iceland en hin í Bónus og

Hagkaup en þar má glöggt sjá hversu mikill verðmunur er á lítilli vörukörfu milli verslana. Neytendur geta því sparað umtalsvert með því að kaupa í jólamatinn þar sem verðið er lágt.

Verðbreytingar hraðar á þessum árstíma
Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 55 tilfellum af 105 en Fjarðarkaup var næst oftast með lægsta verðið eða í 20 tilfellum. Hæstu verðin voru oftast í Iceland, 46 tilfellum af 105 en næst oftast í Hagkaup eða í 40 tilfellum. Lægstu verðin á kjöti og konfekti dreifðust þó á margar verslanir. Algengt er að verslanir séu með ýmis tilboð á þessum árstíma og eru verðbreytingar tíðar. Neytendur eru því hvattir til að fylgjast vel með tilboðum og verðbreytingum á næstu dögum.

Könnunin var framkvæmd í eftirtöldum verslunum: Nettó Mjódd, Bónus Skeifunni, Krónunni Bíldshöfða, Fjarðarkaupum, Iceland Engihjalla, Hagkaup í Garðabæ, Kjörbúðinni Garði og Costco. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.