Metfjöldi útkalla - Flest á Suðurlandi

Á vef Landhelgisgæslunnar kemur fram að Flugdeild Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2023. Alls var flugdeildin kölluð 314 sinnum út í fyrra, bæði á þyrlum og flugvél sem er fimmtán útköllum meira en árið 2022.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út 303 sinnum og áhöfnin á TF-SIF í 11 skipti. 115 útköll voru á fyrsta forgangi, 136 á öðrum forgangi, 51 útkall var á þriðja og 12 á fjórða.

Rúmlega helmingur allra útkalla flugdeildar Landhelgisgæslunnar í fyrra voru vegna sjúkraflutninga á landi eða á sjó eða 161 útkall.

Fjöldi sjúklinga var samtals 183. Flest útköllin voru á Suðurlandi en þónokkur fjöldi var einnig á Suðurnesjum vegna jarðhræringa á Reykjanesi.

Nýjustu fréttir

Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja
Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT
Allt undir í Eyjum – ÍBV þarf sigur
Árangurinn liggur fyrir – Höldum áfram
Siglt til Þorlákshafnar
Island Adventures opnar í Eyjum
Tanja Harðardóttir í lokahóp u-16 fyrir Opna Evrópumótið
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.