Metfjöldi útkalla hjá þyrlusveit Gæslunnar
IMG_1036_þyrla_lagf_25
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar að störfum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2024. Alls var sveitin kölluð 334 sinnum út í fyrra sem er 31 útkalli meira en árið 2023. Af útköllunum 334 voru 135 farin á fyrsta forgangi og 150 á öðrum forgangi.

Ríflega helmingur útkallanna voru vegna sjúkraflutninga eða um 183 útköll. Sjúkraflutningum á landi og sjó fjölgaði um tæplega 14% frá fyrra ári þegar farið var í 161 sjúkraflutning. 85 útköll voru vegna leitar eða björgunar. Eins og áður voru flest útköllin á Suðurlandi eða um þriðjungur allra útkalla síðasta árs. Einnig var nokkur fjöldi vegna útkalla sem tengdust jarðhræringunum á Reykjanesi.

Útköll á sjó voru um fimmtungur allra útkalla þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar. Þyrluútköllum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum áratug og til samanburðar má nefna að árið 2016 voru útköllin 253, segir í tilkynningu á vefsíðu Gæslunnar.

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.