Miðflokkurinn þakkar stuðninginn
Við félagar í Miðflokknum í Suðurkjördæmi viljum koma á framfæri kærum þökkum fyrir stuðninginn í aðdraganda alþingiskosninganna og einnig á kjördag.
Miðflokkurinn er flokkur með djúpar rætur á miðju stjórnmálanna. Flokkur fyrir skynsamt fólk með skýra sýn á grundvallarmál samfélagsins. Miðflokkurinn er flokkur sem veitt getur stöðugleika og staðið vörð um hefðbundin grunngildi en um leið verið flokkur hugmyndaauðgi og framfara. Flokkur sem leitar til þeirra sem best þekkja til á hverju sviði og styður góðar hugmyndir sama hvaðan þær koma. Miðflokkurinn vill halda áfram því starfi sem skilaði sér í hraðasta efnahagslega viðsnúningi nokkurrar þjóðar í seinni tíð og skila ávinningnum til þeirra sem eiga hann með réttu, almennings á Íslandi.
Miðflokkurinn lagði áherslu á það í aðdraganda kosninga að kynna sína stefnuskrá og eiga síðan um hana málefnalega umræðu. Sú nálgun skilaði okkur því að Birgir �?órarinsson náði kjöri sem kjördæmakjörinn þingmaður í Suðurkjördæmi og Elvari Eyvindarsyni sem varaþingmanni en 3999 atkvæði féllu í okkar hlut eða 14.3% gildra atkvæða í Suðurkjördæmi. Á landsvísu fékk Miðflokkurinn 10.9% gildra atkvæða sem er íslandsmet hjá nýju framboði. Sannarlega glæsilegur árangur.
Miðflokkurinn getur, ætlar og þorir að vinna í þágu landsmanna til framtíðar.
Takk, takk og aftur takk fyrir stuðninginn, Miðflokkurinn í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.