Mikið stökk að fara frá ÍBV til Vejle

Felix Örn Friðriksson, varnamaðurinn snjalli fór frá ÍBV í sumar til Danmerkur og spilar nú með úrvalsdeildarliðinu Vejle. Felix Örn er fæddur 1999 á að baki 54 leiki fyrir ÍBV og hefur skorað eitt mark. Auk þess á hann að baki tvo landsleiki fyrir A-landslið Íslands en einnig hefur hann leikið með yngri landsliðum. Hann var á æfingum með U21 á Íslandi í vikunni en Ísland vann ör­ugg­an 5:2-sig­ur á Eistlandi á Kópa­vogs­velli í dag.

Eft­ir átta um­ferðir í dönsku úr­vals­deild­inni eru nýliðar Vejle í 12. sæti af 14 liðum í deild­inni en Fel­ix þreytti frum­raun sína með liðinu í síðustu um­ferð þegar hann kom inn á sem varamaður í marka­lausu jafn­tefli á móti Hor­sens. Felix sagði í samtali við mbl.is að honum líki vel hjá Vejle, „Þetta er flott lið á flott­um stað. Það var mikið stökk að fara frá ÍBV til Vejle. Hraðinn og tempóið er mun meira en í Pepsi-deild­inni. Ég er bú­inn að vera að spila með varaliðinu en hef alltaf verið í hópi með aðalliðinu og fékk mín­ar fyrstu mín­út­ur í síðustu um­ferð. Það er erfitt að koma inn í nýtt lið en ég sé fram á að fá fleiri mín­út­ur,“ sagði Fel­ix Örn í samtali við mbl.is.

Fel­ix seg­ist fylgj­ast grannt með sín­um gömlu fé­lög­um í ÍBV en flest bend­ir til þess að Eyja­menn haldi sæti sínu í Pepsi-deild­inni. „Ég hef fulla trú á ÍBV-liðinu og ég hef verið mjög ánægður með spila­mennsku liðsins eft­ir að ég fór frá því. Ég fór frá liðinu þegar það var í erfiðri stöðu og fannst það mjög leiðin­legt en ég var ánægður með hvernig þeir tóku í þetta og all­ir í Vest­manna­eyj­um.“

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.