Mikið um að vera í Safnahúsinu um sjómannadagshelgina
IMG 7704
Frá opnun fágætissalar Safnahússins. Ljósmynd/aðsend

Það verður mikið um að vera í Safnahúsinu um sjómannadagshelgina. Einn liður í sjómannadagskránni er að opna dyrnar að fágætissal Safnahúss en þar verður tekið á móti gestum föstudag, laugardag og sunnudag kl. 13-17.

Í dag,  uppstigningardag, kl. 14 opnar Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja myndlistarsýningu í Einarsstofu í Safnahúsi Vestmannaeyja. Sýningin er samsýning félagsmanna og að þessu sinni taka 15 félagar þátt í sýningunni.

Sýningin verður opin um sjómannadagshelgina á opnunartíma hússins kl. 10-17. Minnt er á að opið er í Sagnheimum alla daga í sumar kl. 10-17. Síðasta laugardagsopnun á Bókasafninu kl. 12-15 en við bjóðum aftur upp á laugardagsopnun frá og með 1. september. Verið öll hjartanlega velkomin, segir í tilkynningu frá starfsfólki Safnahúss.

Hér má sjá myndbönd frá opnun fágætissalarins.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.