Lögreglan í Vestmannaeyjum sendi í dag um 80 óskilamuni með pósti til viðtakenda víða. Um var að ræða muni sem þjóðhátíðargestir höfðu týnt eða gleymt. Varðstjóri lögreglunnar í Eyjum sagði að mikið hafi verið hringt til að spyrja um óskilamuni eftir hátíðina.