Mikil áhrif á orkukostnað í Eyjum
Allt bendir til að skerðanlegur taxti rafmagnsflutnings í Eyjum falli niður frá og með næstu áramótum
DSC_1472
Rafstrengur tekinn á land á Heimaey árið 2025. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Landsnet stefnir að því að hætta að bjóða upp á skerðanlegan flutning rafmagns til Vestmannaeyja um næstu áramót, samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum.

Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Íris Róbertsdóttir, hefur óskað eftir nánari upplýsingum frá HS Veitum um áhrif breytingarinnar á sveitarfélagið. Í svörum fyrirtækisins kemur fram að niðurfelling skerðanlegs flutnings muni hafa veruleg áhrif á rekstur Herjólfs og auka húshitunarkostnað í Eyjum. HS Veitur kaupa rafmagn á skerðanlegum flutningi og myndi hækkun því skila sér beint inn í verðskrá fyrirtækisins, nema Landsnet setji nýja hagstæðari taxta í stað þeirra sem falla niður.

Í bókun bæjarráðs segir að ráðið leggi þunga áherslu á að í boði verði hagstæðari taxtar fyrir fjarvarmaveitu og hleðslustöðvar Herjólfs þegar skerðanlegir flutningstaxtar falla úr gildi um áramótin.

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.