Mikil bót fyrir sjúkraflutninga fyrir Vestmannaeyjar
Þyrlan Landhelgisgæslunnar að störfum.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti. Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins.

Eins og fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar er aðgengi að heilbrigðisþjónustu í dreifbýli hér á landi víða takmarkað. Landið er strjálbýlt og vaxandi sérhæfing í bráðameðferð gerir auknar kröfur til þess að bráðveikir og slasaðir komist fljótt á Landspítala. Þessum sjúkraflutningum er núna að mestu sinnt með sjúkrabílum og að nokkru leyti með sjúkraflugvél og björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar. Þessa þjónustu þarf að styrkja segir í minnisblaðinu þar sem lagt er til að ráðist verði í tilraunaverkefni til tveggja ára til að kanna betur grundvöll fyrir rekstri og notkun þyrlu í þessu skyni hér á landi.

Lagt er til að þyrlan verði staðsett á suðvesturhorni landsins þar sem útköll vegna slysa og bráðra veikinda eru tíð og hefur fjölgað mikið á síðustu árum á svæðinu, ekki síst á Suðurlandi þar sem straumur innlendra og erlendra ferðamanna hefur verið mikill og vaxandi. Horft er til þess að með þyrlunni og sérhæfðri áhöfn hennar megi stytta umtalsvert viðbragðstíma í útköllum. Þessi þjónusta myndi jafnframt draga úr fjarveru sjúkrabíla og lækna úr héraði og auka þannig öryggi á hlutaðeigandi svæði. Enn fremur væru sjúkraflutningar með þyrlu á suðvesturhorninu mikil bót fyrir sjúkraflutninga fyrir Vestmannaeyjar sem er stærsta byggð Íslands án tengingar við „fastalandið.“

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.