Fyrsti dagur strandveiða 2021 er mánudagurinn 3. maí. Áhugi fyrir veiðunum er mikill sem marka má á umsóknum sem borist hafa til Fiskistofu. Þegar lokað var fyrir umsóknir kl 14:00 í dag höfðu 408 sótt um leyfi, sem eru 74 bátum fleira en á sama tíma í fyrra. Frá þessu er greint á vefnum smábátar.is.
Skipting leyfa eftir svæðum
Strandveiðar | 2021 | 2020 |
Svæði A | 180 | 137 |
Svæði B | 60 | 42 |
Svæði C | 53 | 46 |
Svæði D | 115 | 109 |
Samtals | 408 | 334 |
Óvarlegt er að ætla að fjölgun báta verði jafnmikil og þarna kemur fram, en nánast öruggt að sá viðsnúningur sem varð fyrir þremur árum mun halda áfram. Þar á undan tímabilið [2016 – 2018] var þróunin neikvæð.
LS berst nú fyrir að fá reglugerð breytt þannig að tryggja megi nægan þorskafla til strandveiða í 12 daga í hverjum mánuði. Í fyrra nægði viðmiðunin ekki, þrátt fyrir að bætt hefði verið við hana og voru veiðar þá stöðvaðar 19. ágúst.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst