Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tekur á móti ÍA á Hásteinsvelli í dag í 19. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og eru mikilvæg stig í húfi fyrir Eyjamenn í þéttri baráttu í neðri hluta deildarinnar.

ÍBV situr í 9. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 18 leiki. FH er sæti neðar með jafnmörg stig en KA og Þór eru þar fyrir neðan með 15 stig. Baráttan á neðri hluta töflunnar er því afar þétt.

ÍA er í 7. sæti með 22 stig, fimm stigum á undan ÍBV. Sigur í dag myndi því ekki aðeins gefa Eyjamönnum mikilvægt forskot í baráttunni fyrir neðan heldur jafnframt minnka bilið í ÍA niður í aðeins tvö stig.

ÍBV kemur inn í leikinn eftir 2-2 jafntefli gegn toppliði Víkings á útivelli í síðustu umferð. Eyjamenn hafa hins vegar ekki unnið í síðustu fimm deildarleikjum og því væri sigur á heimavelli kærkominn.

ÍA vann sinn síðasta leik og er með 22 stig, líkt og Valur. Stjarnan er skammt undan með 21 stig og því eru aðeins fimm stig frá ÍBV í 9. sæti upp í Val og ÍA í 6. og 7. sæti.

Þrír leikir fara fram á sama tíma klukkan 18:00 á sunnudag. Auk leiks ÍBV og ÍA tekur KR á móti Breiðablik á Meistaravöllum og FH fær topplið Víkings í heimsókn í Kaplakrika. Sá leikur skiptir Eyjamenn ekki síður máli enda eru ÍBV og FH jöfn að stigum fyrir umferðina.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.