Mikilvægt að Eyjamenn og ferðaþjónustan í Eyjum átti sig á yfirgangi bæjaryfirvalda
Herjólfur á leið til Eyja.
Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands

Þrátt fyrir að Sjómannafélag Íslands fyrir hönd háseta og þerna um borð í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi hafi boðist til að fresta aðgerðum, þá hefur hið opinbera hlutafélag sem rekur Herjólf slegið á útrétta hönd fólksins sem bauðst til að fjölga um aðeins eina þernu og fresta verkfalli til að ná sáttum. Á þá sáttarhönd var slegið.

Nú eru þrjár þernur á vakt á Herjólfi en voru jafnan fimm á vakt yfir hásumarið hjá Eimskip og Samskip sem áður ráku Herjólf. Það má með ólíkindum telja, að Bæjarútgerð Eyjanna undir forystu Írisar Róbertsdóttur bæjarstýru, gangi svo freklega á rétt þerna og háseta. Íris heldur um hlutabréf Herjólfs ohf. Hún ásamt stjórn Herjólfs og framkvæmdastjóra ber ábyrgð á ofríki gegn hásetum og þernum á Herjólfi.

Í desember 2018 lýsti Sjómannafélag Íslands því yfir að vinnufyrirkomulag þerna og háseta um borð í nýjum Herjólfi væri ekki með þeim hætti sem þau sættu sig við. Þeim er gert að vinna þrjár helgar af hverjum fjórum í mánuði ásamt öllum hátíðisdögum. Þessar kröfur lágu fyrir áður en hin opinbera Bæjarútgerð var stofnuð. Sjómannafélagið fór fram fram á viðræður. Bréfum, símtölum og sms-boðum Sjómannafélagsins var ekki svarað. Deilunni var því vísað til Ríkissáttasemjara í febrúar 2020.

Um þverbak keyrði í þvergirðingshætti og virðingaleysi stjórnar Herjólfs ohf. gagnvart fólkinu, þegar samið var við Sjómannafélagið Jötun um kjör að „skapi“ bæjaryfirvalda. Þessi bolabrögð stjórnar Herjólfs voru sem blaut tuska í andlit þerna og háseta. Vestmannaeyjabær viðhefur vinnubrögð sem tíðkuðust á dögum Kreppunnar miklu og brýtur áratuga samskiptareglur á vinnumarkaði. Jötunn er með tvo félagsmenn á Herjólfi á móti 20 félagsmönnum Sjómannafélagsins og bæjarútgerðin krefst þess að Jötuns-samningurinn gildi fyrir alla. Stjórn Herjólfs leitaði til Samtaka atvinnulífsins um að höfða mál fyrir Félagsdómi til að fá verkfallið dæmt ólöglegt. SA og bærinn koltöpuðu málinu. Það var mikil sneypuför.

Það er mikilvægt að Eyjamenn og ferðaþjónustan í Eyjum átti sig á yfirgangi bæjaryfirvalda. Það er mikilvægt að landsmenn átti sig á að verið er að beita fólkið á Herjólfi ofríki og fádæma hroka sem ekki hefur þekkst í verkalýðsbaráttu í áratugi. Bæjaryfirvöld ástunda vinnubrögð sem fyrirtæki taka ekki í mál. Meðan verið er að minnka vinnuálag og stytta vinnutíma starfsstétta í landinu þá fara bæjaryfirvöld í Eyjum í þveröfuga átt þegar kemur að hásetum og þernum á Herjólfi.

Verkfall Sjómannafélags Íslands hófst síðastliðinn þriðjudag og stóð í sólarhring. Næsta verkfall verður næstkomandi þriðjudag 14. júlí og stendur í 2 sólarhringa. Þriðja verkfall verður þriðjudaginn 21. júlí og stendur í 3 sólarhringa.

Jónas Garðarsson
Formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands

Nýjustu fréttir

Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.