Mikilvægt að leysa úr þessu sem allra fyrst

Enn er deilt um afhendingu nýs Herjólfs við skipasmíðastöð í Póllandi. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir miður að viðræður séu komnar í hnút en hann á ekki von á öðru en að pólsk yfirvöld hjálpi til við að leysa málið, segir í frétt á RÚV.

Um miðjan mars kom fram á vef Vegagerðarinnar að viðræðurnar væru á viðkvæmu stigi. Fulltrúar Vegagerðarinnar fóru til Póllands til samningafundar við fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar og voru dagsektir settar á skipasmíðastöðina vegna afhendingardráttar. Í lok mars kom fram að skipasmíðastöðin krefjist þess að fá viðbótargreiðslu sem ekki hafi verið samið um, upp á rúman milljarð vegna verksins. Skipasmíðastöðin bar fyrir sig að mistök við hönnun skipsins sem hafi gert það að verkum að breyta þurfti upprunalega skipinu sem hafði í för með sér aukinn kostnað. Óvíst er því nú um hvenær ferjan verður afhent.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi um málið við utanríkisráðherra Póllands í vikunni. „Í það minnsta voru viðbrögð ráðherrans mjög jákvæð en auðvitað er það þannig með okkur ráðherra þegar mál heyra ekki undir okkur er auðvelt að vera jákvæður en ég á ekki von á neinu öðru en því að þeir sem að þessu máli koma og ég tala nú ekki um pólsk yfirvöld ef þau geta eitthvað komið að málinu að þau muni hjálpa til við að leysa málið.“

Guðlaugur segir það afar slæmt að staðan sé eins og hún er. Margir bíði í ofvæni eftir nýrri ferju. „Já því miður er það svo að þarna virðist hlutirnir vera komnir í hnút sem er auðvitað afskaplega slæmt fyrir alla. Eins og ég nefndi, það er búið að bíða eftir þessari ferju í ofvæni og ég var í Vestmannaeyjum um daginn og ég held að hver einasti maður sem talaði við mig minntist á þetta og það er mikilvægt að leysa úr þessu sem allra fyrst.“

Nýjustu fréttir

Slá ekki slöku við
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.