Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Úr fyrri leik liðanna á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV styrkti stöðu sína í efri hluta Bestu deildar kvenna þegar þær unnu 1-3 sigur gegn Víkingi Reykjavík í 10. umferð deildarinnar í Víkinni í kvöld. Var þetta fyrsti sigur ÍBV í deildinni í tvo mánuði. 

Allison Grace Lowrey kom Eyjakonum á bragðið strax á 8. mínútu leiksins þegar hún skoraði eftir undirbúning Viktoriju Zaicikovu. Skot Allison fór af varnarmanni Víkings, Áslaugu Dóru Sigurbjörnsdóttur, og í netið. Víkingskonur jöfnuðu leikinn á 24. mínútu með frábæru marki frá Örnu Ísold Stefánsdóttur.

Olga Sevcova sá til þess að Eyjakonur færu með forystu inn í hálfleikinn þegar hún skoraði með hnitmiðuðu skoti úr teignum eftir sendingu Allison Lowrey. Staðan 1-2 í hálfleik. 

Víkingskonur sóttu og sóttu í síðari hálfleik í leit að jöfnunarmarki en inn vildi boltinn ekki. Allison Patricia Clark tvöfaldaði forystu ÍBV þegar um 20 mínútur voru til leiksloka með frábæru skoti fyrir utan teig.

Víkingskonur fengu færi til að minnka muninn en færanýting þeirra ekki upp á marga fiska í kvöld. Auk þess sem markvörður ÍBV, Arden Joy La-Rose, átti góðan leik milli stanganna. Lokatölur leiksins 1-3 og Eyjakonur eru komnar aftur á sigurbraut í deildinni.

ÍBV situr í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig. Víkingur er í sjöunda sæti með 10 stig.

Víkingur R. 1 – 3 ÍBV
0-1 Allison Grace Lowrey (‘8 )
1-1 Arna Ísold Stefánsdóttir (’24 )
1-2 Olga Sevcova (’37 )
1-3 Allison Patricia Clark (’72 )

Nýjustu fréttir

Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.