Minna tuð – meiri tenging

ADHD Eyjar standa fyrir fræðslufundi mánudaginn 13. október klukkan 20:00 í Visku undir yfirskriftinni „Minna tuð – meiri tenging“. Fundurinn er ætlaður aðstandendum barna og unglinga með ADHD, en einnig öllum sem vilja fræðast og skilja betur hvernig hægt er að styðja einstaklinga með röskunina í daglegu lífi.

Fyrirlesari kvöldsins er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD-samtökunum og grunnskólakennari. Hún mun fjalla um hvernig ADHD birtist, hvaða áhrif það hefur á hegðun, samskipti og líðan, og hvernig hægt er að skapa umhverfi sem styður við börn og unglinga með ADHD á jákvæðan og markvissan hátt. Á fundinum verður meðal annars rætt um hvernig ADHD kemur fram í daglegu lífi, leiðir til að styðja við tilfinningastjórnun og sjálfstraust, hvernig hægt er að draga úr krefjandi hegðun og setja skýr mörk, og mikilvægi kerfis og sjónrænna áminninga til að minnka óþarfa tuð. Einnig verður fjallað um hvernig efla má samskipti og traust milli heimilis og skóla.

Aðgangur er ókeypis og kaffi verður á könnunni.

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.