Minni líkur á veirusmiti í lokuðum eldiskerjum
Mannvviki vegna fiskeldis í Viðlagafjöru gætu litið svona út

Vegna umræðu um fiskeldi í Eyjum hafði blaðamaður samband við sérgreinadýralækni fisksjúkdóma hjá Matvælastofnun, MAST til að varpa ljósi á málið. Þetta var gert sérstaklega í ljósi frétta af sýkingu í laxeldi í sjó á Austurlandi. „Það fer að sjálfsögðu enginn sýktur fiskur á neytendamarkað, eins og var slegið upp á forsíðu ákveðins blaðs fyrir ekki svo löngu síðan.“ Segir Gísli Jónsson hjá MAST. 

Hverjar eru líkurnar á sýkingu í eldislaxi í landeldi miðað við sjóeldi?  „Líkur á veirusmiti í lokuðu landeldi eru heldur minni en í sjókvíaeldi en fer eftir því við hvaða örverur er að kljást. Ef það eru örverur í náttúrulegu umhverfi í fiska í sjónum eru nánast engar líkur á að lax í landeldi smitist ef venjulegra smitvarna er gætt. Seiðin koma þá algjörlega smitfrí frá seiðastöð í sjó til áframeldis í landeldisstöð,“ sagði Gísli. 

Ítarlegra viðtal við Gísla Jónsson, sérgreinadýralækni er að finna í nýjasta tölublaði Eyjafrétta sem kom út 22. júní 

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.