Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Minnisvarðinn um björgunarskipið Þór stendur í dag í botni Friðarhafnar. Framkvæmda- og hafnarráð vill skoða hvort hann eigi að fá nýjan og sýnilegri stað. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja leggur til að minnisvarði um björgunarskipið Þór, sem síðar varð fyrsta skip Landhelgisgæslunnar, verði færður frá núverandi stað í botni Friðarhafnar. Að mati ráðsins hefur minnisvarðinn horfið inn í umhverfið eftir uppbyggingu á svæðinu og njóti sín því ekki sem skyldi.

Í fundargerð ráðsins kemur fram að umræður hafi verið um staðsetningu minnisvarðans í tengslum við 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar. Afmælishátíð sem fyrirhuguð var á Nausthamarsbryggju 1. júlí þurfti hins vegar að fresta vegna anna hjá Landhelgisgæslunni.

Ráðið leggur til að minnisvarðinn verði reistur á hentugri stað þar sem betur verði minnst eljusemi Eyjamanna við kaup á björgunarskipinu Þór, sem síðar varð fyrsta skip Landhelgisgæslunnar.

Hafnarstjóra hefur verið falið að leiða samtal við helstu hagsmunaaðila um efnislega útfærslu og nýja staðsetningu minnisvarðans. Við þá vinnu verður meðal annars horft til sögulegs gildis, samfélagslegs aðdráttar, kostnaðar og skipulagsmála.

Myndirnar voru teknar í Friðarhöfn í dag.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.