Misvísandi upplýsingar

Kynnt voru fyrir bæjarráði á fundi ráðsins í gær drög að kaupsamningi um kaup Vestmannaeyjabær á hluta húseignar Íslandsbanka við Kirkjuveg 23. Kaupsamningurinn er í samræmi við kauptilboðið sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 11. júní sl. Kaupsamningurinn verður undirritaður síðar í vikunni.

Ekki liggur fyrir sundurliðað verðmat
Fulltrúi D lista bókaði við þessa afgreiðslu. Undirrituð gerir athugasemdir við þá stjórnunarhætti og verklag sem viðhaft hefur verið við kaup bæjarins á húsnæði Íslandsbanka við Kirkjuveg.
Upplýsingar eru misvísandi og samþykkt kauptilboð sem lagt var fram í bæjarstjórn hefur ekki verið gert opinbert á vef Vestmannaeyjabæjar. Í fyrsta lagi þá er bærinn ekki einungis að kaupa þær skrifstofur sem honum vantar fyrir starfsemi sína. Í öðru lagi þá er bærinn að kaupa húsnæði á annarri hæð sem hann hefur ekki ákveðið hvað á að gera við, annað en að veita lögmannsstofu aðgang að því. Í kauptilboðinu kemur fram að bærinn framselji kaup á eignarhluta til sömu lögmannsstofu án þess það sjáist að öðrum hafi gefist kostur á að koma inn í þau kaup. Húsnæðið er ekki laust til afhendingar og ekki ljóst endanlega hvenær svo verður. Ekki liggja frammi opinber sundirliðuð verðmöt á þeim eignarhlutunum sem verið er að kaupa en fullyrt er í blaðagrein að verðið sé gott. Undirritaðri þykir miður að gengið hafi verið að fyrrnefndum kaupum án þess að gagnsæi og jafnræði hafi verið í forgrunni við kaupin.

Ýtrustu hagsmunir Vestmannaeyjabæjar hafa ráðið ferðinni
Lögð var fram eftir farandi bókun frá E og H lista. “Fulltrúar E- og H- lista vilja að fram komi að Íslandsbanki vildi ekki selja húsnæði sitt í hlutum heldur í einu lagi. Gert var tilboð í allan eignarhluta bankans og gerði Vestmannaeyjabær tilboðið með áskilnaði um að framselja hluta af húsnæðinu til Lögmannsstofu Vestmannaeyja þegar og ef tilboðinu væri tekið. Gera þurfti tilboð oftar en einu sinni og gerði Íslandsbanki gagntilboð oftar en einu sinni áður en samningar náðust. Það var þetta samþykkta kauptilboð sem var kynnt í bæjarráði 25. maí s.l.
Það lá hins vegar alltaf ljóst fyrir að ekki væri um að ræða sölu á húsnæðinu frá Vestmannaeyjabæ til Lögmannsstofunnar heldur yrðu endanlegir kaupsamningar og afsöl gerð í tvennu lagi; við Vestmannaeyjabæ annars vegar og Lögmannsstofuna hins vegar. Af þessum ástæðum er talað um ”framsal” í tilboðinu sem var kynnt í bæjarráði 25. maí en ekki í endanlegum kaupsamningi sem er til kynningar í bæjarráði í dag. Það hefur alltaf legið ljóst fyrir að bærinn er að kaupa hluta eignarinnar en ekki eignina alla til þess síðan að endurselja hluta hennar. Öllum bæjarfulltrúum var kunnugt um ástæður þess að munur er á orðalagi í kauptilboði annars vegar og kaupsamningi hins vegar, enda gerði enginn þeirra athugasemd við málið; hvorki í bæjarráði 25. maí né í bæjarstjórn 11. júní. Því miður vilja bæjarfulltrúar minnihlutans nú eftirá freista þess að gera málið með einhverjum hætti tortryggilegt. Ýtrustu hagsmunir Vestmannaeyjabæjar hafa ráðið ferðinni í gegnum allan feril málsins og svo mun verða áfram.

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.