Mjaldrasysturnar eru komnar til Vestmannaeyja heilar og höldnu
Myndir - Óskar Pétur Friðriksson

Rétt fyrir klukkan ellefu núna í kvöld lauk löngu og ströngu ferðalagi mjaldra­systr­anna Litlu Hvítr­ar og Litlu Grárr­ar þegar þær komu til Vest­manna­eyja með Herjólfi, ferðalagið tók alls um 19 klukku­stund­ir.

Syst­urn­ar voru farn­ar að sýna þreytu­merki við kom­una til Vest­manna­eyja að sögn Sig­ur­jóns Inga Sig­urðsson­ar, verk­efna­stjóra hjá sér­verk­efna­deild TVG-Zimzen við mbl.is Ferðalagið hófst klukk­an fjög­ur í nótt að ís­lensk­um tíma þegar vöru­flutn­ingaþota Car­golux, Boeing 747-400 ERF, lagði af stað frá Sj­ang­hæ í Kína með mjaldr­ana um borð. Flugið tók tæpa ell­efu klukku­stund­ir og lenti vél­in í Kefla­vík rétt fyr­ir klukk­an tvö í dag. Þar tók við tollaf­greiðsla auk þess sem full­trú­ar MAST skoðuðu mjaldr­ana og gáfu út form­legt leyfi fyr­ir flutn­ingn­um. Einnig var skipt um vatn að hluta í búr­um systr­anna áður en lagt var af stað eft­ir Suður­stranda­veg­in­um um klukk­an sex síðdeg­is en rétt fyrir klukkan tíu í kvöld keyrðu bílarnir með systurnar inní Herjólf.

Mjaldrasysturnar verða nú settar í einangrun í sérsmíðaðri laug þar sem þær munu dvelja allavega í 40 daga. Þegar aðlögun þeirra er lokið verða þær fluttar á griðastað sinn í Klettsvík.

 

 

Nýjustu fréttir

Hlý orð Sigurjóns glöddu Sigurgeir, hans gamla kennara
Sigtryggur Daði áfram hjá ÍBV
Fyrsta pysja ársins fundin
Gleraugun nauðsynleg þegar sólmyrkvinn skellur á
Deiliskipulagi breytt vegna World Class við Hástein
Tap hjá ÍBV á útivelli gegn Grindavík/Njarðvík
Glódísi Dúnu hlakkar til að hefja nýjan kafla
Fiskaðist vel yfir nóttina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.