Mjaldrasysturnar flytja í Klettsvík í júní
6. maí, 2020
EMBARGOED until Wednesday 6th June 8:30am Little Grey and Little White at Ocean World, Shanghai. Sea Life Trust are creating the worlds first open-water sanctuary for Beluga Whales. Little Grey and Little White currently held in captivity as show animals, are set to be transported by land sea and air to Klettsvik Bay, Heimay Island in Iceland next June.PRESS ASSOCIATION Photo. Picture date: Monday May 7, 2018. See PA story ANIMALS Beluga. Photo credit should read: Aaron Chown/PA Wire

Góðgerðasamtökin SEA LIFE Trust segja í tilkynningu sem send var út rétt í þessu að mjaldrarnir, Litla Hvít og Litla Grá eru nú á lokastigum í undirbúningi fyrir flutning í varanleg heimkynni sín í Klettsvík. Griðarstaðurinn í Klettsvík sem er sá fyrsti sinnar tegundar var byggður fyrir rausnarlegt framlag Merlin Entertainments.

Heilsa og velferð hvalanna hefur verið undir ströngu eftirliti sérfræðinga og dýralækna síðastliðið ár, eftir ótrúlegt 10.000 kílómetra ferðalag þeirra á lofti, láði og legi frá sædýrasafni í Kína til Íslands.

Frá komunni til Íslands hefur verið unnið að aðlögun og undirbúningi fyrir flutning þeirra út í sitt náttúrulega umhverfi. Það hefur falið í sér að undirbúa hvalina fyrir íslenskt veður og sjólag auk þess að venja þá við gróður og dýralíf sem bíður þeirra í nýjum heimkynnum. Einnig hefur staðið yfir undirbúningur fyrir flutninginn sjálfan og þann búnað sem nýttur verður til verksins.

Audrey Padgett, Framkvæmdastjóri SEA LIFE Trust, Vestmannaeyjum: „Litla Grá og Litla Hvít hafa náð undraverðum árangri frá því þær komu til okkar á síðasta ári. Við getum sagt með bros á vör að þær eru nú tilbúnar að flytja í sitt náttúrulega umhverfi í nýjum heimkynnum.
Fremstu sérfræðingar heims hafa unnið að þessu með okkur og hefur velferð hvalanna alltaf verið höfð að leiðarljósi. Þar sem íslensk stjórnvöld munu draga úr takmörkunum vegna COVID-19 faraldursins á næstu vikum sjáum við ekkert því til fyrirstöðu að gera það sem er Litlu Grá og Litlu Hvít fyrir bestu og færa þær í ný heimkynni sín.
Við höldum að sjálfsögðu áfram að fylgjast vel með heilsu og velferð dýranna. En einnig öðrum þáttum sem haft geta áhrif á flutningana.“

Flutningurinn frá hvalalauginni á Heimaey út í kvínna í Klettsvík, sem nær yfir 32.000 fermetra svæði sem er allt að tíu metra djúpt, markar endann á ótrúlegu ferðalagi hvalanna aftur út í sjó. Þessu ferðalagi verður gerð ítarleg skil í heimildarmynd  sem sýnd verður á bresku sjónvarpsstöðinni ITV seinna á árinu.

Dýravinurinn og grínistinn John Bishop sem kemur að gerð myndarinnar sagðist mjög ánægður með reynslu sína af samstarfi við SEA LIFE Trust. „Þetta hefur verið ein besta upplifun lífs míns. Að hitta Litlu Hvít og Litlu Grá í Shanghai í apríl á síðasta ári og fylgjast með þessu ferðalagi, sem hefur verið allt annað en einfalt, hefur opnað augu mín fyrir þeim áskorunum sem þær hafa þurft að takast á við og staðfestu þessa fólks sem vinnur að því að veita þeim betra líf. Þessi heimildarmynd fjallar um von, örvæntingu, vonbrigði, þrautseigju, raunsæi og drauma og þegar ég skrifa þetta veit ég ennþá ekki alveg hvernig það mun enda.“

SEA LIFE TRUST Griðarstaður mjaldra er eitt stærsta verkefnið á heimsvísu þegar kemur að  umönnun og vernd fangaðra hvala og höfrunga og það fyrsta sinnar tegundar stofnað sérstaklega í þeim tilgangi. Verkefnið er unnið í samvinnu við alþjóðlegu verndarsamtökin Whale and Dolphin Conservation (WDC)

Fyrir frekari upplýsingar um SEA LIFE TRUST Beluga Whale Sanctuary eða ef þú vilt leggja málefninu lið endilega heimsækið www.sealifetrust.org.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst