„Mjög mikilvægur vettvangur fyrir okkur”
VSV Bas Barcelona 20250506 112409
Frá sýningunni. Ljósmynd/vsv.is

Í dag lýkur sjávarútvegssýningunni Seafood Expo. Sýningin, sem hefur staðið yfir síðan á þriðjudag er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Sýningin var lengst af haldin í Brussel í Belgíu en var færð yfir til Barcelona og er sýningin í ár haldin í fjórða sinn á Spáni. Vinnslustöðin var venju samkvæmt með bás á sýningunni og tók þar á móti viðskiptavinum og gestum víðsvegar að úr heiminum.

Fáir Bandaríkjamenn á sýningunni

„Við erum sennilega að tala um flestar heimsóknir á básinn hjá okkur til þessa. Allir voru áhyggjufullir út af áhrifum tolla í Bandaríkjunum og hvað Trump gerði næst. Sérstaklega urðum við vör við þetta hjá asískum viðskiptavinum okkar,” segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn.

Hann segir jafnframt að ekki hafi verið margir Bandaríkjamenn á sýningunni. „Þeir hafa miklar áhyggjur af því hvað gerist þann 6. júlí, þegar hækkun tollanna tekur gildi. Hækkun þá getur bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á viðskipti okkar til að byrja með en þegar til lengdar láti þá munu áhrifin vera neikvæð.  Við erum þannig sammála hagfræðingum Seðlabanka Bandaríkjanna.”

Einnig mikilvægur tími fyrir VSV hópinn

Björn Matthíasson rekstrarstjóri VSV Seafood Iceland hefur yfirumsjón með bás félagsins á sýningunni. „Ég tek undir með Binna að þetta er búin að vera mjög góð sýning sem er að enda í dag og er búin að standa yfir síðan á þriðjudag. Þetta er einnig mjög mikilvægur tími fyrir VSV hópinn því þetta er eina skiptið á árinu þar sem við eigum möguleika á að ná öllum saman sem tengjast sölu því það eru jú fyrirtæki sem eru staðsett víðsvegar um heiminn og svo forsvarsmönnum allra framleiðslufyrirtækja/deilda VSV.

Básinn okkar á sýningunni var afskaplega vel nýttur og margir sem lögðu leið sína til okkar. Þetta er mjög mikilvægur vettvangur fyrir okkur til að „liðka“ fyrir þeim viðskiptum sem fyrir eru ásamt því að stofna til nýrra. Sýningin var sem áður gríðarstór. Sýningasvæðið er yfir 50.000 M2 og sýnendur rúmlega 2.100 talsins frá​ 87 löndum,” segir Björn að endingu. Fleiri myndir frá sýningunni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.