Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar er möguleiki á því að öskufall verði í Eyjum í kvöld og á morgun. Spáð er norð-austlægri átt en búist er við því að askan muni dreifast yfir Mýrdalssand, Álftaver, Meðalland, Skaftártungur og jafnvel Skeiðarársand fram á kvöld. Síðar um kvöldið er líklegt að aska fari að falla í Mýrdal og Vestmannaeyjum en að verulega dragi úr öskufalli yfir SA-landi.