
Upp er komin alvarleg staða í samgöngum til Vestmannaeyja þar sem þjóðvegurinn sjálfur er lokaður vegna sandskafla í og við Landeyjahöfn þannig að höfnin er ófær fyrir Herjólf. Hjáleiðin er löng upp í Þorlákshöfn sem dregur verulega úr greiðfærni samgangna til Vestmannaeyja og mætti tíðni flugs til Vestmanneyja vera meiri.
Landsmenn þekkja það vel að verði vegur ófær vegna ófærðar er hafist handa eins fljótt og mögulegt er að moka snjóinn til að gera veginn færan á ný, óháð því hvort um þjóðveg eða aðra vegi er að ræða. Þegar svo er skiptir ekki máli hvort að snjóruðningstæki sé bilað eða hver fjárveiting til vetrarþjónustu er, í versta falli getur þurft að bíða í einn til tvo sólarhringa eftir mokstri.
Það er því eðlileg krafa að því verði hraðað eins og unnt er að sinna vetrarþjónustu um Landeyjahöfn svo hægt verði að opna þjóðveginn til Vestmannaeyja. Þar hljóta að gilda sömu lögmál og gilda um aðra vetrarþjónustu hér á landi.
Til að byrja með þarf að tryggja að útboð og samningar um dýpkun í Landeyjahöfn tryggi ásættanleg afköst og rekstraröryggi en ekki láta eingöngu kostnaðartölur ráða för.
Klára þarf rannsóknir og úttektir sem Alþingi fól samgöngustjórnvöldum að gera fyrir nokkrum árum til að hægt sé að fjármagna og koma í framkvæmd nauðsynlegum úrbótum í Landeyjahöfn.
Málefni Landeyjahafnar voru rædd í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á dögunum við Innviðaráðuneytið í kjölfar eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðanda og munum við fylgja því máli áfram eftir. Vandræðalegt og sárt hefur verið að fylgjast með skilnings- og úrræðaleysi innviðaráðherra í málinu, nú síðast í útvarpsviðtali á Bylgjunni 4. mars sl.
Að lokum vil ég fagna þeirri mikilvægu vinnu sem hefur verið unnin við stofnun félagsins Eyjagöng ehf. og þeirri góðu vinnu sem hefur verið unnin af hálfu félagsins. Það er skylda stjórnvalda að koma af krafti að þeirri vinnu og tryggja framgang verkefnisins. Ég hlakka til að koma til Vestmannaeyja í gegnum göng en þangað til verðum við að tryggja öruggar og greiðar samgöngur til Vestmannaeyja um Landeyjahöfn, allt árið um kring.
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður í Suðurkjördæmi og ritari Sjálfstæðisflokksins