Molda gefur út lag eftir Árna Johnsen

Hljómsveitin Molda sem kemur fram á Eyjatónleikunum í Eldborg 27. janúar n.k. hefur gert ábreiðu og endurgert lagið “Eyjan mín í bláum sæ” eða “Heim á ný” eins og lagið er stundum kallað eftir Árna Johnsen sem féll frá 6. júní 2023.

Lagið hefur verið mikið spilað á Eyjakvöldum af sönghópnum Blítt og Létt og hefur verið ómissandi á þeim kvöldum. Molda fékk leyfi fjölskyldu Árna til að gera nýja útgáfu af laginu og gera það þannig að sínu. Árni samdi lagið 1973 þegar eldgosið stóð yfir á Heimaey og gaf út á smáskífu sama ár, því er lagið um 51 árs gamalt. Molda fékk hluta af Karlakór Vestmannaeyja til að syngja með í laginu og var upptökustjórn í höndum Gísla Stefánssonar ásamt Molda. “Útgáfan er óður okkar til Árna og allt það sem hann gerði fyrir tónlistarlífið og menninguna í Eyjum,” segir í tilkynningu frá sveitinni. Hægt er að hlusta hér að neðan.

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.