Molda með nýtt myndband - Ymur Jörð

Eyjarokkhljómsveitin Molda sendi í morgunn frá sér nýtt myndband við lagið Ymur Jörð en lagið kom út í mars á þessu ári. Myndbandið er veglegt og skartar meðal annars skemmtilegu myndefni frá gosstöðvunum í Geldingadölum.

Lagið er eftir frændurna Albert og Helga Tórshamar. Textinn sem er eftir Sigurmundur G Einarsson fjallar um eldgosið í Heimaey 1973. “Lagið átti upphaflega að koma út á plötunni okkar sem er í vinnslu. Fagradalsfell gýs eins og alþjóð veit, og við tókum samhljóma ákvörðun að gefa lagið út strax í ljósi gossins – eðlilega,“ sagði Helgi Tórshamar, gítarleikari sveitarinnar í samtali við Eyjafréttir. Ásamt honum í hljómsveitinni eru þeir Albert snær sem syngur og leikur á gítar, Þórir Rúnar (Dúni) sem spilar á bassa og Birkir Ingason sem trommar.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.