Karlalið ÍBV í handbolta sigraði Aftureldingu með þriggja marka mun, 32-29, í 18. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Eyjamenn voru með undirtökin strax frá upphafi leiks og voru komnir með fjögurra marka forystu eftir tíu mínútur, 8-4. Munurinn á liðunum var þrjú til fimm mörk út hálfleikinn og leiddu Eyjamenn í hálfleik, 19-14.
Heimamenn voru áfram með yfirhöndina í síðari hálfleik. Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum var munurinn fimm mörk, 27-22. Á lokakafla leiksins komst Afturelding betur inn í leikinn og náði að minnka muninn í eitt mark, 29-28, þá sjö mínútur til leiksloka. Eyjamenn náðu hins vegar aftur tveggja marka forystu og unnu að lokum nokkuð öruggan þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 32-29. Eftir leikinn eru liðin jöfn í 4. og 5. sæti deildarinnar með 23 stig.
Hákon Daði Styrmisson var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk. Morgan Goði Garner kom inn á fyrir Petar Jokanovic um miðjan fyrri hálfleik og átti frábæran leik. Hann varði 14 skot í marki Eyjamanna og Petar varði 2 skot.
Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson 7 mörk, Andri Erlingsson 6, Daníel Þór Ingason 6, Anton Frans Sigurðsson 4, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Dagur Arnarsson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1, Sveinn José Rivera 1.
Leikur FH og Selfoss fór fram á sama tíma þar sem FH vann með þremur mörkum, 33-30.
Næsti leikur ÍBV er gegn KA á Akureyri, sunnudaginn 22. febrúar kl. 14:30.