Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Keppnisbíllinn fær nauðsynlegt viðhald eftir annasamt tímabil. Edda Björk Guðnadóttir hefur þrisvar oltið í keppni á árinu en heldur ótrauð áfram með stuðningi föður síns, Guðna Grímssonar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hin 16 ára gamla Edda Björk Guðnadóttir þegar skapað sér nafn í rallýcrossi á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún lagt ómælda vinnu í akstursíþróttina, þar sem metnaður, þrautseigja og fjölskyldusamstaða skipta sköpum.

Í nýju myndbandi Eyjafrétta ræðir Halldór B. Halldórsson við Eddu Björk og föður hennar, Guðna Grímsson, um hvernig áhuginn kviknaði, undirbúninginn fyrir keppnir og hvað þarf til að ná árangri í jafn krefjandi íþrótt og rallýcrossi. Þar fá áhorfendur jafnframt innsýn í það öfluga bakland sem stendur að baki ungum keppanda sem stefnir sífellt hærra.

Play Video

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.