Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Nýja íbúðablokkin að Áshamri 77 er farin að taka á sig mynd. Þar verða 27 íbúðir auk bílakjallara og lyftu. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Framkvæmdir við nýja íbúðablokk að Áshamri 77 halda áfram og byggingin er farin að taka á sig mynd. Halldór B. Halldórsson sýnir okkur framkvæmdasvæðið og umhverfi þess úr lofti í nýju myndbandi.

SA smíði standa að verkefninu en byggingin verður fjórar hæðir með bílakjallara og lyftu. Þar verða 27 íbúðir af tveimur stærðum, ýmist 62 eða 105 fermetrar.

Eyjafréttir fjölluðu um verkefnið í febrúar síðastliðnum. Þá kom fram í máli Svans Arnar Tómassonar að húsið yrði í svipuðum stíl og nærliggjandi nýbyggingar, en jafnframt með ýmsum nýjungum. Meðal annars verða svalalokanir og glerbygging á bakhlið hússins sem myndar sérinngang að hverri íbúð.

Íbúðirnar eru hugsaðar fyrir breiðan hóp, meðal annars eldra fólk sem vill minnka við sig og yngra fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði. Stefnt hefur verið að því að framkvæmdum ljúki vorið 2027, gangi áætlanir eftir.

Útsýnið úr blokkinni verður ekki af verri endanum, en þaðan sést meðal annars yfir vesturbæinn, Herjólfsdal og út til úteyja.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.