Nánast eingöngu karfi hjá Bergi

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði nánast fullfermi í Eyjum sl. sunnudag. Rætt var við Jón Valgeirsson skipstjóra og þá fyrst spurt út í samsetningu aflans á vef Síldarvinnslunnar.

„Nú var það karfi, nánast ekkert nema karfi. Við byrjuðum á að veiða djúpkarfa í Grindavíkurdýpinu og síðan var haldið í Skerjadýpið þar sem fékkst grunnkarfi. Þar stoppuðum við stutt. Þá lá leiðin á Stuttagrunn við Eldeyna og þar fékkst gullkarfi. Aflinn var nánast eingöngu karfi, fáeinir ufsatittir í þessu. Við fórum út strax eftir löndun og þá var haldið beint austur á Ingólfshöfða. Þar var góð þorskveiði í byrjun en svo datt botninn úr veiðinni. Núna, þegar ég er að tala við þig, erum við á fullri ferð á leiðinni á Papagrunn fyrir austan. Þar hefur verið góð ýsuveiði að undanförnu og fengist þorskur og smávegis ufsi með. Það virðast hins vegar engin skip vera á Papagrunni núna. Kannski eru þau að flýja ýsuna sem þar heldur sig,“ segir Jón.

Nýjustu fréttir

Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
MATEY Seafood Festival snýr aftur
1.maí, baráttudagur verkafólks á Íslandi
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.