Náttúrugripasafnið opnað á sínum gamla stað

Á morgun, sunnudag kl. 13:00 í Náttúrugripasafninu við Heiðarveg opnar Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs sýningu á munum safnsins, fugla- og steinasafni. Hörður Baldvinsson, safnstjóri fjallar um sögu safnsins. Djúpið opnar sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn.
„Ég kom með þessa tillögu því mér fannst þetta einfaldara, að vera hér á gamla staðnum í staðinn fyrir að rífa upp fuglana og steinana og setja í kassa og koma þeim fyrir einhverstaðar úti í bæ við misjöfn skilyrði,“ segir Hörður sem hefur undanfarið unnið hörðum höndum ásamt fleira góðu fólki við að laga til á safninu og þrífa.
„Hér hefur safnið verið allt frá 1964 og er góð lausn því við erum ekki klár með byggingu undir hvorki steina- né fuglasafnið,“ bætti Hörður við og vonast til að sjá sem flesta við opnunina.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.