Netarall að klárast

Netarall hófst í lok mars og lýkur í vikunni. Gagnasöfnun er lokið á þremur svæðum af sex, í Breiðafirði, Faxaflóa og á grunnslóð og í kanti við Vestmannaeyjar. Frá þessu er greint á vef hafrannsóknarstofnunnar. Það eru 5 bátar sem taka þátt í netarallinu í ár; Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR frá Reykjanesi að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Þorleifur ÞH fyrir norðurlandi.

Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- / þyngdasamsetningu, kynþroska og vöxt eftir aldri á helstu hrygningarsvæðum þorsks. Einnig til að meta árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.

Um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðvar en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar. Úrvinnsla gagna fer fram í maí og helstu niðurstöður verða kynntar í byrjun júní.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.