Neyðarkortið - við hjálpum
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Velferðarráðuneytið hefur endurútgefið neyðarkort sem voru upphaflega gefin út af samráðsnefnd sem hafði með höndum að hrinda í framkvæmda aðgerðaáætlun vegna ofbeldis gegn konum í nánum samböndum. Um er að ræða lítið og handhægt kort með fyrirsögninni ; �??Við hjálpum.�?? Kortið er á fimm tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, rússnesku og tælensku. Kortinu er ætlað að leiðbeina konum sem þurfa aðstoð vegna ofbeldis á heimili eða kynferðislegs ofbeldis um hvert þær geta leitað sér hjálpar.

Á kortinu er símanúmer Neyðarlínunnar (112), Kvennaathvarfsins, Stígamóta, Neyðarmóttöku vegna nauðgana og Hjálparsíma Rauða krossins.

Kortinu verður dreift víðsvegar um landið, s.s. á heilsugæslustöðvum og hjá félagsþjónustum sveitarfélaga.

�?eir sem óska eftir að fá eintök af kortinu geta snúið sér til velferðarráðuneytisins og sent beiðni um það á netfang ráðuneytisins; postur@vel.is

Nýjustu fréttir

Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.