Vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Hásteinsvelli vill aðalstjórn ÍBV íþróttafélags árétta eftirfarandi.
Í framhaldi af beiðni Vestmannaeyjabæjar um framtíðarsýn félagsins í skipulagsmálum voru haldnir tveir upplýsingafundir með fulltrúaráði félagsins þar sem framtíðar skipulagsmálin voru rædd og mótuð. Aðalstjórn óskaði einnig eftir skriflegu áliti frá handknattleiksdeild og knattspyrnudeild vegna málsins. Félagsfundur ÍBV íþróttafélags var haldinn 30. september s.l. þar sem að rætt var og staðfest framtíðarsýn félagsins. Fyrir fundinum lágu fjórar eftirfarandi tillögur: gervigras og flóðlýsing á Hásteinsvelli, félagsheimili við Hástein, handknattleikshöll við Hástein og stækkun Herjólfshallar. Fram komin álit voru lesin upp á fundinum og þar kom fram að knattspyrnuráð karla horfði frekar til stækkunnar á Herjólfshöll en framkvæmda við Hásteinsvöll. Niðurstaða félagsfundarins var að gervigras og flóðlýsing á Hásteinsvelli yrði fyrsta framkvæmd framtíðarsýnarinnar og var hún samþykkt mótatkvæðalaust eins og fram kemur í fundargerð.
Að sjálfsögðu framfylgir aðalstjórn ÍBV íþróttafélags niðurstöðu félagsfundar.
Aðalstjórn óskaði eftir þessari forgangsröð framkvæmda við Vestmannaeyjabæ í kjölfarið og ákvörðun bæjarstjórnar því í fullu samræmi við óskir félagsins.
Jafnframt hvetur stjórnin deildir félagsins til góðra verka hér eftir sem hingað til. Þar starfar gott fólk og miklir félagsmenn.
Áfram ÍBV
Þór Vilhjálmsson
Guðmunda Bjarnadóttir
Björgvin Eyjólfsson
Katrín Harðardóttir
Örvar Omrí Ólafsson
Jónas Guðbjörn Jónsson
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.