Niðurstaða félagsfundar gervigras og flóðlýsing

Vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Hásteinsvelli vill aðalstjórn ÍBV íþróttafélags árétta eftirfarandi.

Í framhaldi af beiðni Vestmannaeyjabæjar um framtíðarsýn félagsins í skipulagsmálum voru haldnir tveir upplýsingafundir með fulltrúaráði félagsins þar sem framtíðar skipulagsmálin voru rædd og mótuð. Aðalstjórn óskaði einnig eftir skriflegu áliti frá handknattleiksdeild og knattspyrnudeild vegna málsins. Félagsfundur ÍBV íþróttafélags var haldinn 30. september s.l. þar sem að rætt var og staðfest framtíðarsýn félagsins. Fyrir fundinum lágu fjórar eftirfarandi tillögur: gervigras og flóðlýsing á Hásteinsvelli, félagsheimili við Hástein, handknattleikshöll við Hástein og stækkun Herjólfshallar. Fram komin álit voru lesin upp á fundinum og þar kom fram að knattspyrnuráð karla horfði frekar til stækkunnar á Herjólfshöll en framkvæmda við Hásteinsvöll. Niðurstaða félagsfundarins var að gervigras og flóðlýsing á Hásteinsvelli yrði fyrsta framkvæmd framtíðarsýnarinnar og var hún samþykkt mótatkvæðalaust eins og fram kemur í fundargerð.

Að sjálfsögðu framfylgir aðalstjórn ÍBV íþróttafélags niðurstöðu félagsfundar.

Aðalstjórn óskaði eftir þessari forgangsröð framkvæmda við Vestmannaeyjabæ í kjölfarið og ákvörðun bæjarstjórnar því í fullu samræmi við óskir félagsins.

Jafnframt hvetur stjórnin deildir félagsins til góðra verka hér eftir sem hingað til. Þar starfar gott fólk og miklir félagsmenn.

Áfram ÍBV

 

Þór Vilhjálmsson
Guðmunda Bjarnadóttir
Björgvin Eyjólfsson
Katrín Harðardóttir
Örvar Omrí Ólafsson
Jónas Guðbjörn Jónsson

 

Ályktun félagsfundar frá 30-09-2021 má nálgast hér.

Nýjustu fréttir

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV
Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell
Tafir á haffærniskírteini Herjólfs III
Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV
Forsendur þess að fjölskyldur blómstri
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja
Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.