Niðurstöður tilrauna lofa góðu
Matís og Vinnslustöðin hafa unnið náið saman að verkefninu Sjávarsalt, þar sem rannsakað er nýtni aukaafurðar (pækill) úr búnaði sem framleiðir ferskvatn úr sjó
Saltfiskvinnsla hjá Vinnslustöðinni.

Frá því síðasta sumar hefur Matís og Vinnslustöðin unnið saman að verkefninu Sjávarsalt, sem hlaut nýsköpunarstyrk úr sjóðnum Lóu árið 2024, með það að markmiði að nýta nýstárlegar og sjálfbærar aðferðir við saltfiskframleiðslu, segir í frétt á vef Matís.

Eftir að ferskvatnslögnin til Vestmannaeyja rofnaði fyrir nokkrum árum keypti VSV afsöltunarbúnað frá hollenska fyrirtækinu Hatenboer-water til að tryggja ferskvatnsframboð í Eyjum. Ein aukaafurð úr þessari vinnslu er pækill (brine) sem hingað til hefur ekki verið nýttur. Sjávarsalt-verkefnið athugar hvort hægt sé að nýta þessa aukaafurð úr ferskvatnsframleiðslunni sem fyrsta þrep í saltfiskvinnslu, eða pæklun fisks. Í hefðbundinni aðferð er blandað ferskvatni og innfluttu salti. Með því að skipta yfir í að nota aukaafurð úr afsöltunarbúnaðinum í stað ferskvatns og innflutts salts í fyrsta þrepinu (pæklun) væri hægt að minnka notkun á innfluttu salti. Hluti verkefnisins var einnig að kanna hvort pækillinn hefði áhrif á gæði saltfisksins.

Megintilgangur verkefnisins er að auka nýtingu hráefna og endurnýtingu í fiskvinnslu og draga úr notkun á innfluttu salti. Ef vel tekst til gæti þetta orðið fyrirmynd fyrir nýja vinnslulínu og umhverfisvænni vinnubrögð í sjávarútvegi. Niðurstöður tilrauna lofa góðu og gæði fisksins breyttist ekki, framleiðsluferlið gæti því orðið bæði sjálfbærara og ódýrara, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.