Níu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Níu frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí nk. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kom saman í gær og fór yfir framboð sem bárust áður en framboðsfrestur rann út. Voru þau öll úrskurðuð gild. Um er að ræða 3 konur og 6 karla. Meðalaldur frambjóðenda er 47 ár. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt 5 frambjóðendur hver.

Frambjóðendur eru:

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Reykjanesbæ
Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, Sveitarfélaginu Árborg
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, Skaftárhreppi
Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, Hveragerði
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, laganemi, Rangárþingi eystra
Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri, Vestmannaeyjum
Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, Grindavík

Einnig má finna allar helstu upplýsingar um prófkjörið hér: https://xd.is/profkjor-i-sudurkjordaemi/

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.