Níunda tapið í röð staðreynd

ÍBV sótti heim Víking í gær í leik í Pepsi Max-deild karla. Víkingur tók hins vegar öll völd á vellinum strax frá upphafi og leiddu leikinn 1-0 í hálfleik eftir mark á 38. mínútu. Síðari hálfleikurinn var svo meira af því sama og á 75. mínútu juku Víkingar muninn í tvö mörk. Sá munur hélst þó stutt þar sem Pórtúgalinn Telmo Castanheira minnkaði muninn fyrir ÍBV með skotu utan úr teig í kjölfar hornspyrnu. Heimamenn tryggðu sér hinsvegar auðveldan sigur á 82. mínútu. Lokatölur 3-1 og níunda tap ÍBV í röð staðreynd.

Það er því nokkuð ljóst að ÍBV mun leika í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð. Tölfræðilega er þó enn möguleiki en ekkert í leik liðsins bendir til annars en að menn hafi sætt sig við örlögin. „Ég held að menn þurfi bara að finna það hjá sjálfum sér að gera sig ekki að fífli. Sama hvort það séu 99% líkur á að liðið fari niður eða ekki, þetta er bara fótboltaleikur og við þurfum að setja kassann út og vinna hvern einasta leik sem við spilum,” sagði Sindri Björnsson, miðjumaður ÍBV í viðtali við Vísi.is eftir leikinn. „Við sköpuðum okkur ekki mikið, ekkert frekar en í öllum öðrum leikjum. Víkingsliðið er gott lið, þeir gerðu vel og voru betri en við í dag. Frammistaðan var mjög döpur frá aftasta manni til fremsta.”

Eftir leikinn situr ÍBV sem fastast á botni deildarinnar með aðeins fimm stig, tólf stigum á eftir næsta liði, Grindavík. Sex umferðir eru eftir af deildinni og því 18 stig í pottinum.
Næsti leikur liðsins er gegn Hásteinsvelli á sunnudaginn þegar KA kemur í heimsókn.

Nýjustu fréttir

Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Kristmundur Axel kemur fram á Þjóðhátíð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.