Nú er lögð áhersla á blandaðan afla

Veiðin hjá Vestmannaey VE og Bergey VE hefur verið góð það sem af er mánuði. Skipin hafa fengið yfir 700 tonn en þau hafa lagt áherslu á að fiska annað en þorsk. Þau hafa veitt löngu, lýsu, steinbít og kola, en nú hafa þau hafið ýsuveiðar.

Slegið var á þráðinn til Jóns Valgeirssonar skipstjóra á Bergey í morgun og spurt hvernig gengi að forðast þorskinn. „Það er bara erfitt. Það er svo mikið af þorski út um allt að hann truflar verulega þegar veiða á aðrar tegundir, en það þarf að sjálfsögðu að hugsa um fleira en þorsk. Við erum núna innarlega á Papagrunni að reyna við ýsu. Veiðin hefur gengið svona bærilega, en við komum ekki í neina ýsu fyrr en við vorum komnir austureftir. Áður lögðum við áherslu á steinbít og kola og þá var mest verið við Ingólfshöfðann. Lýsu höfum við fengið í fótreipi í Háfadýpinu, en mér finnst vera heldur minna af lýsu en verið hefur síðustu árin“, segir Jón.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.