Nú er stefnan tekin austur fyrir land

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í heimahöfn sl. fimmtudagsmorgun eftir stuttan túr. Áður hafði skipið landað á þriðjudag. Á föstudagskvöld var haldið til veiða á ný og þá var farið austur fyrir land.

Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær en aflinn var blandaður. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Við vorum á Reynisdýpinu og á Víkinni. Þetta gekk bara vel. Það var farið út strax eftir löndun og nú erum við á fyrsta holi á Öræfagrunni. Hann spáir bölvaðri brælu hér á morgun og því er ekki ólíklegt að við förum austar. Einhverjar sagnir eru um að afli sé heldur að glæðast þar,“ segir Jón.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.