„Nú flæðir vertíðarfiskurinn þarna yfir”
Bergur Vestmannaey 20250331 081527
Skipin við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á laugardaginn. Aflinn var fyrst og fremst þorskur, ýsa og ufsi. Rætt var við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar á meðan löndun stóð yfir.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að afar vel hefði veiðst. „Við vorum á Víkinni allan tímann og veiðin var afar góð. Túrinn tók tvo sólarhringa höfn í höfn og við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það er svo sannarlega að lifna yfir þessu og fiskurinn er stór og fallegur,” sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tók undir með Jóni. „Nú er farið að glaðna yfir okkur köllunum. Við fórum fyrst á Pétursey í túrnum en stoppuðum þar stutt og fórum á Víkina. Þar var aðgæsluveiði. Nú flæðir vertíðarfiskurinn þarna yfir og í ár gerist það býsna seint. Þetta lítur afar vel út og nú eftir löndun ætlum við að kíkja á Selvogsbankann og kanna stöðuna þar,” sagði Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða strax að löndun lokinni en komu til hafnar í Vestmannaeyjum í gær vegna brælu og voru með hálffermi. Landað verður úr Bergi en síðan halda skipin til veiða í dag. Fyrir bræluna var veitt á Selvogsbanka og vestur af Surtsey.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.