Ríkið á að fá nýja Vestmannaeyjaferju afhenta úti í Póllandi 20. júní á næsta ári, samkvæmt samningi sem vegamálastjóri og fulltrúar pólsku skipasmíðastöðvarinnar Crist undirrituðu í gær.
Fulltrúar stöðvarinnar hafa lýst því yfir að þeir muni nú þegar hefjast handa við smíðina. Einhvern tíma tekur að koma skipinu heim og útbúa það en Vegagerðin gerir þó ráð fyrir að skipið verði komið í gagnið fyrir �?jóðhátíð.
Samið var við pólsku skipasmíðastöðina að loknu útboði þar sem tilboð þess var talið hagstæðast, eftir að norsk skipasmíðastöð féll frá tilboði sínu. Kemur þetta álit fram í frétt um undirritunina á vef Vegagerðarinnar. Tilboð Crist var 26,2 milljónir evra, sem svarar til liðlega 3,1 milljarðs króna á núgildandi gengi.
Mbl.is greindi frá.