Eyjamenn kynntu í dag nýja ferju sem unnið hefur verið að í samráði við rússneska sendiráðið á Íslandi en kynningin fór fram á samráðsfundi um samgöngumál Vestmannaeyja. Ferjan er ekki ósvipuð og sú ferja sem Grímur Gíslason og Bárður Hafsteinsson kynntu á dögunum en Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að ekki liggi fyrir kostnaður við smíðina. Þó er talið að ferjan sé á svipuðu verði og ferja Gríms og Bárðar.