Nýjustu loðnumælingar í takt við fyrri mælingu
Vsv Lodna3
Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Uppsjávarveiðiskipin Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson hafa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun verið við loðnumælingar suðaustan- og austan við land frá mánudegi til föstudags þessarar viku. Markmiðið var að fá endurtekna mælingu á magn loðnu í megingöngunni á þeim slóðum til samanburðar við niðurstöður mælinga í vikunni á undan, segir í fréttatilkynningu frá Hafrannsóknastofnun

Bæði skipin fóru yfir allt svæðið eftir mismunandi leiðarlínum og því er um að ræða tvær óháðar mælingar á magninu þar. Bráðabirgða niðurstöður sýna ívið lægra mat á stærð veiðistofnsins en í mælingunni í vikunni á undan á sömu slóðum. Það er því ljóst að niðurstöðurnar munu leiða til óbreyttrar ráðgjafar um engar veiðar.

Hafrannsóknastofnun ráðgerir að Árni Friðriksson fari til loðnuleitar norður að landinu öðru hvoru megin við næstu helgi.

Myndin til vinstri sýnir leiðarlínur Aðalsteins Jónssonar (blá) og Polar Ammassak (bleik) 27.-31. janúar 2025
og mislangar línur þvert á leiðarlínur endurspegla þéttleika loðnu. Hægri myndin sýnir þéttleika loðnu.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.