Nýliðaæfing Karlakórs Vestmannaeyja
Karlakórinn heldur nýliðaæfingu á sínum hefðbundna æfingatíma, sunnudaginn nk. 18. febrúar kl. 16:00. Er þetta kjörið tækifæri fyrir söngelska karla að koma og syngja í frábærum félagsskap. Á dagskrá kórsins þetta vorið eru m.a. æfingaferð á meginlandið sem og árlegir vortónleikar í maí.
Eftirfarandi tvær mýtur eru algengar meðal þeirra sem langar að prófa en hafa sig ekki í það:
�?ú telur þig ekki geta sungið.
�?að kann að vera rétt að það sé ekki einn af kostum þínum að syngja einn og óstuddur, en í kór geta allir sungið sem geta farið eftir einföldum leiðbeiningum, hlýtt stjórnanda og hlustað á það sem aðrir eru að gera í kring um þá. Í kórum í dag eru meðlimir sem þurftu mikla leiðsögn til að byrja með en náðu fljótt og örugglega að stilla sig inn á þá bylgjulengd sem kórsöngur er á og eru allir þeir í dag fanta góðir kórsöngvarar
�?ú telur þig ekki hafa tíma.
�?að getur vel passað og við rengjum það ekki, en um leið viljum við benda þér á að ein megin stoð kórsins eru sjómenn. Eins og gefur að skilja eru þeir ekki alltaf í landi þegar kórkallið kemur. �?eir láta það þó ekki stoppa sig í að vera með þegar þeir geta. Karlakórinn á ekki að vera kvöð heldur skemmtun. �?ú kemur þegar þú getur. Vertu bara hreinskilin með hver tími þinn er ef hann er takmarkaður og allir eru sáttir.
Stjórn Karlakórs Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.