Nýr farsældarhraðall til að efla menntun og lífsgæði íslenskra barna
IMG 2032
Við höfum stigið skref hér í Eyjum til að gera betur fyrir nemendur og er þróunarverkefnið Kveikjum neistann flaggskipið okkar, segir m.a. í grein Írisar. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Andvari er ný stofnun sem hefur það markmið að stuðla að farsæld íslensku þjóðarinnar. Starfið er rekið án hagnaðarsjónarmiða og er fjármagnað af sex fjölskyldum sem standa að verkefninu. „Ísland stendur frammi fyrir stórum áskorunum þegar kemur að börnum okkar, menntun og heilbrigði,“ segir Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara. „Ef ekkert breytist gæti innan fimm ára meirihluti heillar kynslóðar barna verið ólæs, þ.e. ekki náð lágmarkshæfni í lesskilningi og meirihluti drengja orðin óvirkur í skólakerfinu.“

Tryggvi bendir einnig á að hlutfall barna sem ekki fá næga grunnþjálfun í íslensku og félagsfærni aukist á sama tíma og biðlistar í mennta- og heilbrigðiskerfinu séu óeðlilega langir miðað við íbúafjölda landsins. „Kennarar, foreldrar og sveitarfélög þurfa fleiri tól og meiri stuðning. Þetta er samfélagslegt verkefni þar sem allir ættu að finna sér hlutverk. Við viljum leggja okkar af mörkum,“ segir Tryggvi.

Sex verkefni þegar farin af stað

Tryggvi 222+
Tryggvi Hjaltason

Andvari ætlar að styðja uppbyggingu framúrskarandi menntakerfis, heilbrigðiskerfis og velferðar með nýrri, skalanlegri tækni ásamt því að efla gildi á borð við kærleika, auðmýkt, jákvæðni, samkennd, þakklæti og von. „Við byrjum á menntakerfinu og höfum þegar tekið þátt í sex verkefnum á því sviði,“ segir Tryggvi. Tvö þeirra eru hafin og snúa að því að efla aðgang kennara að fjölbreyttum og góðum námsgögnum. Í samstarfi við Menntamálastofnun og Apró var settur upp vefurinn kennaralon.is, þar sem kennarar og áhugafólk um menntun geta bæði deilt og nýtt sér kennsluefni í anda „open source“ hugmyndafræðinnar.“

Tryggvi segir að nú þegar séu þar hundruð kennslumyndbanda og sífellt vaxandi efnisbanki sem kennarar geta sótt og notað í án endurgjalds. „Mikilvægast er þó að þeir sem búa sjálfir til efni geta nú auðveldlega deilt því með öðrum. Kennararnir eru okkar framlínufólk í þessari orrustu,“ segir Tryggvi.

Stærðfræði verður að leik

Annað stórt verkefni snýr að því að efla áhuga barna á stærðfræði. Andvari styður við þjóðarátak sem byggir á stærðfræðilausninni „Evolytes“ sem gerir námsferlið að leik fyrir nemendur á fyrstu og miðstigum grunnskóla. Nær allir grunnskólar landsins eru þátttakendur og hafa börn nú þegar leyst yfir milljón  stærðfræðidæmi á skólaárinu. Börn í Vestmannaeyjum eru meðal þeirra sem hafa staðið sig hvað best. „Það verður sífellt erfiðara að vekja áhuga barna á grunnfögum. Allt sem hjálpar til skiptir máli  og við höfum mikla trú á „Evolytes“. Tvö af mínum börnum fengu sjálf áhuga á stærðfræði í gegnum leikinn,“ segir Tryggvi.

Samstarf þvert á kerfin

Andvari leggur áherslu á langtímastarf og að styðja þá sem sýni metnað og getu til umbóta, hvort sem það eru sveitarfélög, ríkið, stofnanir, fyrirtæki, skólar eða kennarar. „Það á eftir að koma betur í ljós hversu mikil áhrif stuðningur okkar mun hafa en möntruna sem við vinnum eftir mætti orða svona,“ segir Tryggvi og vitnar í Tómas Guðmundsson:

Meðan til er böl er bætt þú gast
Og barist var meðan hjá þú sast
Er ólán heimsins einnig þér að kenna.

Nýjustu fréttir

Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.